Þýskaland:)Arna Sigríður Albertsdóttir

jæja .. ég ákvað að byrja að blogg aftur :)... Já núna er ég stödd  í Þýskalandi heima hjá henni Hafrúnu :)
Hér kemur smá ferðasaga:
Í gærmorgun ( LAugardag) vöknuðum við eldsnemma og héldum til Reykjavíkur með fyrri vél. Þangað kom Hói frændi minn að sækja okkur og við eyddum nokkrum klukustundum í Reykjavíkurborg áður en við fórum út á Keflavík. Þegar þangað var komið beið okkar löng innritunarröð. Svo fórum við bara í fríhöfnina og svo um borð í vélina. Þegar við lentum svo loksins í KAupmannahöfn kom enhver skrýtinn reykur inn um gluggan hjá okkur, við vorum mikið á spá í hvað þetta væri en þá tilkynnti flugstjórinn að það hafði kviknað í einu dekknu á vélinni við hemlunina. Já svo þegar við loksins komumst út úr vélinni var bara heilt slökvilið fyrir utan vélina 4 eða 5 bílar.. haha já, gaman að því. Frá Kaupmannahöfn var 5 tíma keyrsla heim til Hafrúnar í Cuxhaven og vorum við komin hingað um hálf 4 ( hálf 6 á Íslenskum tíma).
Í dag fórum við svo á markað niðri á höfn þar sem gæta mátti ýmisra grasa. Svo hjóluðum við um bæinn og á ströndina og okkur tókst meira að segja að villast aðeins.. já gaman að því!
Jæja ég nenni þessu ekki lengur
Arna 

Aðalvalmynd

Auglýsing